Möguleikhúsið slegið af?

Möguleikhúsið Þá er það ljóst. Möguleikhúsið hlýtur enga styrki frá Menntamálaráðuneytinu þetta árið. Þetta er okkur gríðarlegt áfall og setur framtíð leikhússins í fullkomið uppnám. Við munum að sjálfsögðu reyna hvað við getum til að fá okkar hlut réttan, en ef enginn stuðningur fæst er ljóst að draga verður verulega úr allri starfsemi leikhússins. Eftir tæplega átján ára starf við uppbyggingu barnaleikhúss þykja okkur þetta kaldar kveðjur. Meira um þetta síðar, nú reynum við að safna kröftum og jafna okkur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Þetta eru hörmulegar fréttir. En það er víst aldrei á vísan að róa í þessum bransa.

Herðið upp hugann!

Hallmundur Kristinsson, 31.1.2008 kl. 23:10

2 Smámynd: Möguleikhúsið

Við gerum okkar besta. Þakka þér stuðninginn Hallmundur, þú ert öðlingur!

Möguleikhúsið, 1.2.2008 kl. 07:22

3 Smámynd: Bergur Þór Ingólfsson

Lifi Möguleikhúsið!!!!

Bergur Þór Ingólfsson, 1.2.2008 kl. 10:47

4 identicon

Möguleikhúsið verður að starfa áfram framlag þess til barnamenningar á Íslandi er ómetanlegt. Skamm Leiklistarráð -

Elfar Logi Hannesson (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 16:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband