11.6.2009 | 14:25
Þriðji dagur leikhúsnámskeiðs
3. dagur - 10. júní
Það var farið í hópspuna og leiki í morgun. M.a. spegilæfingu og síðan bjuggu þau til myndastyttur hvert úr öðru sem síðan lifnuðu við. Að því loknu lásum við söguna og kvæðið um Sálina hans Jóns míns. Nýttum söguna svo í spuna sem unnir voru í tveimur hópum. Eftir hádegið var haldið áfram að vinna með sömu söguna í nýjum hópum og á dálítið breyttum forsendum.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.