29.1.2009 | 15:15
Æfingar standa yfir á Alla Nalla
Æfingar standa um þessar mundir yfir hjá okkur í Möguleikhúsinu á leiksýningunni Alli Nalli og tunglið, sem byggir á sögum Vilborgar Dagbjartsdóttur. Öllu miðar þessu í rétta átt og frumsýning er áætluð í menningarmiðstöðinni Gerðubergi sunnudaginn 8. mars, en að því loknu verður ferðast með sýninguna í leik- og grunnskóla. Nokkuð er farið að spyrjast fyrir um Alla Nalla nú þegar og búið að bóka sýningar í leik- og grunnskólum. Það eru þær Alda Arnardóttir og Anna Brynja Baldursdóttir sem leika í sýningunni, sem er ætluð áhorfendum að 8 ára aldri.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.