Ný sæti í Möguleikhúsinu

Nokkrar endurbætur hafa staðið yfir í Möguleikhúsinu við Hlemm undanfarna daga. Gömlu gulu sætin, sem á sínum tíma voru fengin frá kvikmyndahúsi varnaliðsins á Keflavíkurflugvelli, máttu muna sinn fífi fegurri og fengu að víkja fyrir glænýjum fagurbláum sætum. Þá hefur einnig verið skipt um gler í gluggum leikhússins og er nú allstaðar komið tvöfalt gler í stað þess gamla einfalda. Allt er þetta skref í áttina að því að búa betur að áhorfendum leikhússins.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Kristjánsdóttir

Til hamingju með það

María Kristjánsdóttir, 17.9.2007 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband